[16:01]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
Virðulegur forseti. Ég tek undir það að hér er um að ræða mál sem er ástæða til að taka á. Hins vegar hlýt ég að fagna því að hæstv. félmrh. er búinn að átta sig á því að þetta mál kemur bæði samgrh. og þingmönnum einstakra kjördæma við. Það er vægast sagt afskaplega sérstakt þegar okkur þingmönnum er sýnt bréf frá félmrh., eins og gerðist til að mynda varðandi sameiningu sveitarfélaga við Öxarfjörð, þar sem samgrh. lofar að beita sér fyrir því að vinna að því að lagt verði bundið slitlag á veginn nánast endilangan eftir hinu nýja sveitarfélagi.
Það vil nú þannig til að þetta var í tíð fyrri ríkisstjórnar en þá var samgrh. í þingmannahópi kjördæmisins en hvorki hafði verið haft samband við hann né aðra þingmenn kjördæmisins þegar þetta bréf var skrifað.