[22:53]
Jón Kristjánsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það vildi svo til að ég horfði á þetta sjónvarpsviðtal sem hæstv. sjútvrh. vitnar til og ég gat nú ekki túlkað það þannig, þó að hæstv. sjútvrh. hafi gert það með góðum vilja, að hv. 7. þm. Reykn. væri að lýsa vantrausti á hv. 1. þm. Austurl. í sjávarútvegsmálum. Það hefur verið alger samstaða í Framsfl. í sjávarútvegsmálum og hefur hann verið eini flokkurinn sem hefur verið samstiga í þessum efnum og haft eitthvað fram að færa sem hefur verið á að treysta, enda hefur hæstv. sjútvrh. byggt á þeirri stefnu alla sína tíð í sjútvrn. og er bara ekkert minni maður af því. (Gripið fram í.) Af því að hv. 2. þm. Vestf. er nefndur, þá hefur hann vissulega haft sínar skoðanir í sjávarútvegsmálum, en hann hefur fylgt þingflokknum í þessu efni og þingflokkurinn hefur verið algerlega óklofinn í afstöðu til sjávarútvegsins. Hv. 2. þm. Vestf. hefur vissulega haft sínar efasemdir, en hann hefur eigi að síður gengið til samkomulags um þessa stefnu og er ekki minni maður af því.