Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

115. fundur
Þriðjudaginn 22. mars 1994, kl. 23:05:46 (5524)


[23:05]
     Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka þessa ábendingu sem kom frá forseta vegna þess að þetta er einmitt athugasemd sem ég hef sjálf gert, að það mætti halda að nokkrir þingmanna hér telji sig vera komna í umræðu um sjávarútvegsmál og um það fiskveiðifrv. sem á eftir að fjalla nánar um hér.
    Vegna beinnar spurningar þingmannsins til mín, þá vil ég svara því að það er ekki minn siður að fara út í bollaleggingar um ef og hefði eða hvort verður. Alþfl. hefur staðið að framlagningu þessara frumvarpa eins og fram hefur komið hjá sjútvrh. Þau frumvörp fara að sjálfsögðu til vinnslu og ef breytingar eiga eftir að verða þar á, þá koma þær í ljós. Það væri fjarri mér að standa hér í þessum ræðustól og fara að gefa niðurstöðu í málin fyrir fram út frá spurningum þingmannsins.