Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

115. fundur
Miðvikudaginn 23. mars 1994, kl. 00:05:06 (5551)


[00:05]
     Jón Kristjánsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég sé ekki að það sé annar vettvangur til að ræða þetta mál heldur en hér. Ég vantreysti ekkert formanni efh.- og viðskn., hv. 1. þm. Austurl., til að fjalla um þetta mál. En það verður auðvitað að vera samhengi í því hvernig málum er vísað til nefnda. Og ég get ómögulega séð að þetta mál heyri undir efh.- og viðskn. yfirleitt. Ef þetta er ekki byggðamál þá á að vísa þessu til fjárln. því þetta er fjárgreiðsla úr ríkissjóði. Og fjárln. á að fjalla um það mál. En hins vegar tek ég undir með hv. 2. þm. Suðurl. að þetta hefur verið túlkað hér sem byggðamál og þá heyrir það undir allshn.