Stækkun atvinnu- og þjónustusvæða á Vestfjörðum

115. fundur
Miðvikudaginn 23. mars 1994, kl. 00:06:04 (5552)


[00:06]
     Jón Helgason (um fundarstjórn) :
    Hæstv. forseti. Eins og ég sagði áðan þá hefur sérstaklega hæstv. sjútvrh., bæði utan þings og innan, lagt mikla áherslu á að þetta sé byggðamál og alls ekki sjávarútvegsmál svo að það var vegna þeirra orða sem ég var að vekja athygli á þessu þegar farið var að ræða um í hvaða nefnd mál ættu að fara. Og ég vil taka undir með hv. 2. þm. Austurl. að það er vitanlega alveg fráleitt að ákveða það hvert mál á að fara eftir því hver er formaður nefndar. Það er sjónarmið sem ég held að hæstv. fjmrh. hafi ekki lært í sínu skrifarastarfi.