Varamaður tekur þingsæti

116. fundur
Miðvikudaginn 23. mars 1994, kl. 13:33:52 (5558)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að þar sem 1. varaþm. Alþfl. í Reykjavíkurkjördæmi getur ekki vegna sérstakra anna tekið sæti á Alþingi taki 2. varaþm., Valgerður Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari, Reykjavík, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Össur Skarphéðinsson, 17. þm. Reykv.``


    Borist hefur annað bréf:
    ,,Undirritaður 1. varaþm. Alþfl. í Reykjavík getur ekki vegna anna tekið sæti Össurar Skarphéðinssonar umhvrh. á Alþingi frá 23. mars 1994 að telja. Óska ég eftir að Valgerður Gunnarsdóttir, 2. varamaður Alþfl. í Reykjavík, taki sæti í hans stað.
    Virðingarfyllst, Magnús Jónsson.``

    Valgerður Gunnarsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.