Lax- og silungsveiði

116. fundur
Miðvikudaginn 23. mars 1994, kl. 15:27:25 (5591)


[15:27]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég hef út af fyrir sig ekki miklu við að bæta það sem ég sagði áður út af athugasemdum hv. þm. Þær eru í svona ákveðnum nöldurtóni. Aðalatriðið er það að þetta frv. er alþingismönnum kunnugt nema einn kafli þess. Mér er kunnugt um það ef hv. þm. hefur löngun til þess í landbn. að óska eftir því að kalla til alla dorruna sem honum dettur í hug þá er auðvitað hægt að tefja fyrir málinu --- en þá það.