Lax- og silungsveiði

116. fundur
Miðvikudaginn 23. mars 1994, kl. 15:37:32 (5598)


[15:37]
     Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil taka fram að ég hef ekki lýst því úr þessum ræðustól að ég sé ekki tilbúin að afgreiða þetta mál á þessu vori. Ég hef einungis áhyggjur af því að tíminn sé allt of naumur sem

við höfum til stefnu, en eins og hæstv. landbrh. seegir, þá verður það bara að koma í ljós þegar nefndin fer að vinna að málinu hversu langt við komumst með það.