[15:23]
Fyrirspyrjandi (Valgerður Sverrisdóttir) :
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir hans svör og eins þeim hv. þm. sem hér hafa tekið til máls um þetta mikilvæga mál. Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um framtíðarnýtingu á þessu fallega og stórmerkilega húsi en ég skil það svo að það mál liggi ekki í neinum dvala heldur sé verið að velta því fyrir sér.
Ég get séð fyrir mér hin ólíku söfn sameinast um húsið sem einhvers konar miðstöð sýninga á innlendum menningararfi. Það mætti líka hugsanlega hafa þar tónleika eða myndlistarsýningar. Ég get alveg nefnt sem dæmi að Þjóðarbókhlaða, Árnastofnun, Þjóðskjalasafn, Þjóðminjasafn eða safn Seðlabankans og fleiri söfn gætu átt þarna inni. En aðalatriðið er það að húsið verði nýtt þannig áfram í þágu þjóðarinnar sem einhvers konar menningarmiðstöð en að hæstv. ráðherra leiði ekki hugann að því að fara að gera það að hæstaréttarhúsi eða öðru slíku, enda kom það fram í hans máli að það stendur ekki til.
Eins og hér hefur komið fram gilda ákveðin lög um þau hús sem eru friðuð og Safnahúsið er í friðunarflokki A þannig að því verður ekki breytt, hvorki að utan né innan. Okkur eru því nokkuð þröngar skorður settar varðandi nýtinguna og ég er að sumu leyti þakklát fyrir að það er ekki hægt að gera hvað sem er með þetta hús vegna sögunnar sem þar býr að baki og er mjög merkileg.
Ég hvet hæstv. menntmrh. að lokum til þess að fara að hugsa þetta mál alvarlega og ákvörðun verði tekin í tengslum við samþykkt nýrra laga.