[15:34]
Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
Hæstv. forseti. Spurt er í fyrsta lagi: ,,Hvaða reglu styðst ráðherra við þegar veitt eru embætti héraðsdýralækna?`` Þar er fyrst og fremst stuðst við starfsreynslu, sem vegur þyngst, framhaldsmenntun, endurmenntun, ábyrgð í starfi, félagsstörf. Sérstakir punktar eru gefnir fyrir að sinna afskekktu héraði og héraðsdýralæknar frá fleiri punkta heldur en praktiserandi. Þetta er um það að segja.
Í öðru lagi er það rétt hjá hv. þm. að nú fyrir áramót var Rúnari Gíslasyni, dýralækni í Stykkishólmi, veitt héraðsdýralæknisembætti í Mýrasýslu. Þá hafði komið fram að það var mjög traustur stuðningur við Gunnar Gauta í Mýrasýslu. Það voru ekki einhverjir bændur í Mýrasýslu sem studdu hann heldur var þar mjög mikill stuðningur frá þorra bænda. Mér finnst því alveg ástæðulaust að gera lítið úr því þótt kona eigi í hlut. Á bak við umsókn þessa manns, sem hafði verið praktiserandi í þessu dýralæknisumdæmi, var mikill stuðningur frá bændum sem þekktu til hans starfa. Það er alveg rétt að eftir að í ljós kom að Rúnar Gíslason, dýralæknir í Stykkishólmi, kaus að hverfa frá einmitt af þeim ástæðum hversu mikils trausts Gunnar Gauti naut í þessu dýralæknisumboði, þá ákvað ég í hið síðara sinn að taka tillit til vilja bænda á svæðinu. Ég vísa því algerlega á bug að það hafi eitthvað með kyn að gera. Í Norðurlandskjördæmi eystra eru fjórir kvendýralæknar starfandi nú um þessar mundir, tveir héraðsdýralæknar, einn í Hrísey og einn, má ég segja, heilbrigðisfulltrúi á Húsavík og ég hef ekki heyrt neinar umræður um það að kvendýralæknar standi eitthvað verr í stykkinu en aðrir. Það kemur mér satt að segja mjög mikið á óvart að hv. þm. er að gera því skóna að ástæða hafi verið til að taka þannig á málinu.