Sjónvarps- og útvarpssendingar frá Alþingi

122. fundur
Þriðjudaginn 29. mars 1994, kl. 19:03:57 (5774)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill taka undir það sem kom fram í máli hv. 4. þm. Austurl. að þetta hefur verið kannað. Það er ekkert athugavert við þá málsmeðferð sem 1. flm. leggur til að málinu verði ekki vísað til sérstakrar nefndar en væntir þess að öðru leyti að forsætisnefnd skoði málið áður en það kemur aftur fyrir þingið.