[20:39]
Guðmundur Hallvarðsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hvað tímann áhrærir þá erum við Íslendingar bara á góðum tíma. Greenwich Mean Time, GMT, er sá tími sem við höfum farið eftir og höldum stöðugleika okkar þar. Hv. 1. flm., Vilhjálmur Egilsson, sem flytur þessa þáltill. ásamt öðrum ágætum þingmönnum kom ekkert inn á að það eru fáir einir sem hafa mest um kvartað, það eru ákveðnir aðilar í verslun og viðskiptum. Það eru þeir sem vilja að öll þjóðin raski sinni klukku og breyti tímanum hér á Íslandi þeirra vegna. Það eru meginrökin. En ég veit það, þykist vera þess fullviss að meginhluti þjóðarinnar kærir sig ekkert um það að vera með þetta hringl á klukkunni.
Í annan stað er það að þessi tillaga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, ég verð að segja það að mér finnst alveg nóg um, það er kannski allt í lagi að fá hugmyndir eða tillögur erlendis frá en hvenær fáum við næst tillögur frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að það sé einhver ákveðinn háttatími fyrir Íslendinga?