[13:45]
Páll Pétursson :
Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. þessi svör. Mér heyrðist hann reynar vita jafnlítið um ferðalag hæstv. utanrrh. og ég. Það kemur í ljós í svarinu að það hefur ekki verið tekin ákvörðun í ríkisstjórninni um opnun þessa sendiráðs, en fréttina varð maður að skilja þannig að utanrrh. hefði í Kínaförinni lýst yfir ákvörðun um þetta efni.
Samkvæmt því sem hæstv. utanrrh. greindi frá í utanrmn. daginn áður en hann fór var að vilji stæði til þess að koma fyrir sendifulltrúa í norrænu sendiráði í Peking. Mér kemur það hins vegar á óvart og það er ekki í samræmi við það sem hæstv. utanrrh. sagði á utanríkismálanefndarfundi, ef ég man rétt, að þessi ráðherra yrði með sendiherranafnbót. Ég man ekki betur en hann tilkynnti að sendiherrann yrði búsettur á Norðurlöndum, það væri einungis um sendifulltrúa að ræða. Ég er dálítið hræddur um að hæstv. utanrrh. hafi farið ansi langt fram úr heimildum sínum. Annaðhvort hefur hann gert það eða greint utanrmn. rangt frá áður en hann fór.