Framleiðsla og sala á búvörum

123. fundur
Miðvikudaginn 06. apríl 1994, kl. 14:36:11 (5828)


[14:36]
     Ragnar Arnalds :
    Virðulegur forseti. Sá frumvarpstexti sem hér liggur fyrir er málamiðlun stjórnarflokkanna sem í báðum tilvikum hefur verið túlkaður á tvo vegu af hv. talsmönnum stjórnarflokkanna, einkum og sér í lagi af hv. varaformanni og formanni landbn. Þessi tillaga er flutt til að fá það á hreint hvað felst í þessum væntanlegu lögum og eins og fram kom í atkvæðaskýringu hv. formanns landbn. er sá texti sem hér er gerð tillaga um í fullu samræmi við skoðanir hans. Því sætir það nokkurri furðu að hann og skoðanabræður hans og skoðanasystur skuli ekki styðja þessa tillögu. En ég segi að sjálfsögðu já.