Fríverslunarsamningur milli Fríverslunarsamtaka Evrópu og Búlgaríu

123. fundur
Miðvikudaginn 06. apríl 1994, kl. 18:08:52 (5857)


[18:08]
     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Ég skrifaði undir þetta nál. með fyrirvara og fyrirvari minn lýtur fyrst og fremst að þeim formgalla sem hv. frsm., hv. 3. þm. Reykv., formaður utanrmn., var að enda við að gera að umtalsefni.
    Þarna urðu mistök í ráðuneytinu við undirbúning málsins og það er alveg ljóst að bókun A á að gilda um samningana alla. En þetta eru ekki nógu þinglegar aðfarir að taka þetta upp sem fylgiskjal í nál. Ég vil undirstrika alveg sérstaklega að þetta á að fylgja og geri sem sagt athugasemd við formið en er málunum samþykkur að öðru leyti.