Málefni aldraðra

123. fundur
Miðvikudaginn 06. apríl 1994, kl. 19:10:05 (5878)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Við erum hér að ræða þetta frv. ásamt brtt. við það við 2. umr. þannig að það gefst þá tækifæri til þess að skoða málið betur á milli 2. og 3. umr. og forseti er fús til þess að fá slíkt álit, eins og hv. 2. þm. Vestf. nefndi, hjá einhverjum lögfræðingum.