[15:12]
Margrét Frímannsdóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er einmitt þetta sem ég átti við. Ef málaflokkarnir eru mismunandi, stærð sveitarfélaganna er mismunandi, og það á síðan að verða leiðbeinandi til þess að sjá með hvaða hætti verkaskipti ríkis og sveitarfélaga verða í framtíðinni, ef lítil sveitarfélög taka t.d. bara málefni fatlaðra eða aldraðra en stærri sveitarfélögin taka heilsugæslustöðvarnar og sjúkrahúsin, málefni fatlaðra og aldraðra, með hvaða hætti eigum við að meta þessa reynslu inn í framtíðina ef öll sveitarfélögin af mismunandi stærð og gerð eru ekki að fást við sömu málaflokkana? Þá erum við í raun og veru að segja, matið er það að sveitarfélag yfir 10.000 manns getur ráðið við að taka við öllum verkefnum. Verkaskipti ríkis og sveitarfélaga verða þá miðuð við það en síðan getur sveitarfélag sem er undir stærðarflokknum 10.000 bara ráðið við einhverja tvo málaflokka, við höfum ekki reynsluna af því hvort þau ráða við þá málaflokka sem þau ekki tóku að sér.
Reynslusveitarfélög
124. fundur
Fimmtudaginn 07. apríl 1994, kl. 15:12:15 (5933)