[19:03]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þegar til samráðsvettvangsins var stofnað var fyllilega ljóst og um það rætt á milli aðila, að auðvitað væri ekki ætlunin að stöðva einstök tiltekin mál í einkavæðingunni. Það lá fyrir allan tímann. Og ef bíða ætti eftir niðurstöðum dómstóla varðandi 14. gr. laganna frá 1954, um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, þá ættu menn auðvitað að setja öll þessi mál á ís. Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina af ástæðum sem ég veit að hv. þm. er kunnugt. Það mál geta dómstólarnir einir skorið úr um,
en afstaða stjórnvalda og þeirra lögfræðinga sem til hefur verið leitað er mjög skýr.