Alþjóðasamþykktin um öryggi fiskiskipa

125. fundur
Föstudaginn 08. apríl 1994, kl. 12:41:49 (6003)


[12:41]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Páli Péturssyni fyrir það að upplýsa um þessa málsmeðferð í utanrmn. í morgun sem mér var ekki kunnugt um. Mér finnst það mjög eðlilegt að það sama gildi einnig um ýmsa aðra dagskrárliði sem hér eru á dagskrá og það er greinilegt að hv. utanrmn. hefur verið vel á verði í þessu og ætlar sér að hafa gott samstarf við aðrar nefndir þingsins.