Réttindi eftirlitsmanna vegna samnings um herafla í Evrópu

125. fundur
Föstudaginn 08. apríl 1994, kl. 12:49:41 (6010)


[12:49]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Það er ekki efnisleg umræða um frv. sem ég hafði hugsað mér heldur fyrst og fremst vegna þess að ég vil taka undir orð hv. 1. þm. Norðurl. v. um það að ég tel að þetta sé utanríkismálanefndarmál og ég hefði haldið að þangað ætti að vísa því. Mér er það ekki ljóst eftir að hafa farið yfir þetta frv. hvers vegna því er vísað til allshn. og mjög eðlilegt þar sem áður hefur verið fjallað um þennan samning í hv. utanrmn. að þessi breyting eða viðbót sé áfram þar inni. Að öðru leyti sýnist mér að hér sé sagt að það sé sérstaklega á málefnasviði utanrmn. og vil því leggja til að eftir þeim ábendingum sé farið að þetta sé mál þeirrar nefndar.