Fullgilding ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um bókun 47

125. fundur
Föstudaginn 08. apríl 1994, kl. 15:00:53 (6034)


[15:00]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir að taka undir þann skilning minn á þessu að hér sé ekki verið að opna markaði og ekki verið að opna fyrirtæki og þetta sé ekki til hagræðingar fyrir hinn almenna borgara heldur fyrst og fremst til hagræðingar fyrir stórfyrirtæki. Ég tel að með þessum samningi og þeim viðbótum sem við erum að ræða sjáum við fram á að EES-samningurinn og gildistaka hans hefur fyrst og fremst orðið til þess að loka okkur inni en ekki að opna markaði.