Málefni aldraðra

129. fundur
Þriðjudaginn 12. apríl 1994, kl. 13:51:17 (6138)


[13:51]
     Svavar Gestsson (um fundarstjórn) :
    Hæstv. forseti. Það er rétt hjá hæstv. forseta að ég bar fram tillögu um að vísa málinu til hv. heilbr.- og trn. og stend út af fyrir sig við þá tillögu. Hins vegar bendi ég forsetanum á að hv. formaður þingflokks Framsfl. fór þess á leit að meðferð málsins núna yrði frestað og það yrði skoðað aðeins betur fram að næsta fundi og ég tek undir þær óskir hans.