Málefni aldraðra

129. fundur
Þriðjudaginn 12. apríl 1994, kl. 13:57:07 (6145)


[13:57]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Hér hafa verið allmiklar deilur um málsmeðferð þessa frv. og var gerð mjög vel grein fyrir því bæði við 2. umr. og 3. umr. Ég tel að með því að vísa þessu máli til nefndar nú á þessu stigi muni vera fullnægt þeim ákvæðum sem við höfum hér verið að gagnrýna að ekki væri með því að mál færu í gegnum þrjár umræður. Ég vil því hvetja þingmenn til þess að styðja það að málinu verði nú vísað aftur til heilbr.- og trn. svo að þessu máli geti lokið með viðunandi hætti og í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli.