[17:01]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
Herra forseti. Eyjan Grótta er í eigu Vita- og hafnamálastofnunar og eins og hv. þm. er kunnugt var fyrir löngu tekin ákvörðun um að sérstakur vitavörður byggi ekki í Gróttu þó Vita- og hafnamálastofnun hafi áfram rekið vitann. Tilefni þess að þetta frv. er flutt er að hinn 9. apríl nk. --- hann er nú sennilega þegar liðinn --- Seltjarnarnes varð 20 ára hinn 9. apríl. Í tilefni af því vöknuðu umræður milli samgrh. og bæjarstjórans á Seltjarnarnesi um að Seltjarnarnes gæti keypt eyjuna þar sem segja má, eins og hér stendur með athugasemdum, að hún sé eins konar tákn Seltjarnarness og útvörður bæjarins og hafi að sjálfsögðu tilfinningalegt gildi fyrir bæinn. Þarna er mjög fallegt í góðu veðri eins og víðar á Íslandi og hugmynd bæjarstjórnar hefur verið sú að nýta eyjuna sem hluta þess fólkvangs og útivistarsvæðis sem er framarlega á nesinu eða fremst á nesinu.
Grótta var lýst friðland árið 1974 með auglýsingu um friðland í Gróttu og gilda þar ákveðnar reglur um mannvirkjagerð, jarðrask og umferð fólks um eyjuna.
Ég sé nú ekki ástæðu til að hafa í rauninni um þetta fleiri orð. Mér finnst eðlilegt að sveitarfélagið fremur en Vita- og hafnamálastofnun varðveiti þessa dýrmætu náttúruperlu hér í nágrenni Stór-Reykjavíkursvæðisins og sjái um að ekki skapist þar hætta og góð regla sé þar á öllum hlutum. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir því að Vita- og hafnamálastofnun muni áfram reka vitann og að hann verði áfram eign ríkisins. Hér er ekki talað um neitt ákveðið verð í þessu sambandi, eingöngu farið fram á að samgrh. sé heimilað að gera samning við Seltjarnarneskaupstað um sölu á eyjunni.
Ég tel þetta mál sjálfsagt. Ég vona að hv. samgn. geti afgreitt þetta mál á þessu vori, að öðrum kosti er óhjákvæmilegt að leggja frv. fram á nýjan leik á hausti komanda. Ég legg til að málinu verði vísað til 2. umr. og samgn.