Vöruflutningar á landi

129. fundur
Þriðjudaginn 12. apríl 1994, kl. 17:42:52 (6193)


[17:42]
     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það kemur vonandi í ljós í meðferð nefndarinnar með hvaða hætti á að fara með þessi mál en ég held að það sé alveg nauðsynlegt. Þetta sýnir okkur að það þarf að undirbúa svona mál betur. Þó svo að ráðuneytið hafi tekið sér allan þennan tíma til að undirbúa málið og það komi ekki fram fyrr en komið er fram undir þinglok þá liggja ekki fyrir þeir hlutir sem menn þurfa að fá að vita. Við munum auðvitað leita eftir þeim upplýsingum í nefndinni.