Röð mála á dagskrá

130. fundur
Miðvikudaginn 13. apríl 1994, kl. 13:57:22 (6216)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti getur upplýst að hæstv. starfandi utanrrh. er utan bæjar og kemur ekki fyrr en í kvöld. Þar af leiðandi er því miður ekki hægt að taka það mál á dagskrá sem gert var ráð fyrir að yrði aðalumræðuefnið í dag. Forseti veit ekki á þessari stundu hvort hægt verður að taka það síðar til umræðu en að sjálfsögðu verður haldið áfram og tekin fyrir þau mál sem á dagskrá eru.