Samfélagsþjónusta

130. fundur
Miðvikudaginn 13. apríl 1994, kl. 14:37:36 (6229)


[14:37]
     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Þetta mál er nú engan veginn jafn einfalt og hv. þm. vill láta í veðri vaka. En það er alveg sjálfsagt að verða við ábendingum hans og hafa samband við stjórn Landssambands leigubifreiðastjóra og fá nánar að vita um þær upplýsingar sem þingmaðurinn lætur hér uppi um það að ekki hafi verið góð samvinna um þessi málefni milli ráðuneytis og leigubifreiðastjóra. Það er sjálfsagt að kynna sér það og athuga hvort þeir tali tvennum rómi um þau mál.