[15:15]
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég held að þessu hafi verið svarað vel hér úti í sal. Núv. ríkisstjórn hefur m.a. afrekað það að taka 7.500 Íslendinga út af vinnumarkaðinum þannig að það er steinn úr glerhúsi þegar hv. þm. Árni Johnsen er að snúa út úr orðum mínum með þeim hætti sem hann gerði hér. Auðvitað er það ekki keppikefli nokkurs manns í sjálfu sér að taka menn út af vinnumarkaði. En menn standa náttúrlega bara frammi fyrir tilteknum aðstæðum og það er mikið óraunsæi og aumingjadómur í málflutningi að þora ekki að horfast í augu við þær. Hv. þm. Árni Johnsen þorir auðvitað ekki að svara því og standa hér og segja: Það er betra að 20 ára og 25 ára menn gangi atvinnulausir og einhverjir sem eru að ljúka löngum starfsdegi fái að halda áfram fram yfir sjötugt heldur en þeir fari þá á eftirlaun og njóti elliáranna lausir undan starfsþrasinu. Ég held að það sé félagslega, út frá réttlætissjónarmiðum og á allan hátt skynsamlegt við þær aðstæður sem við stöndum frammi fyrir að jafna vinnunni, stytta þess vegna jafnvel vinnudaginn en fleiri komist að. Við stöndum m.a. frammi fyrir því vandamáli núna að ungt fólk kemst ekki inn á vinnumarkaðinn. Það fær hreinlega ekki vinnu þegar það kemur út úr skólum eða er komið á þann aldur að það vilji fara að taka sér störf.
Er hv. þm. Árni Johnsen að segja í alvöru að hann telji það í sjálfu sér ekkert vandamál? Það skipti meira máli að menn sem eru kannski búnir að starfa í 40--50 ár fái að halda því áfram, þess vegna meira og minna í plati þar sem þeir eru að ráða einhverja aðra til að keyra fyrir sig?
Varðandi svo það sem hv. þm. sagði að þetta mismunaði einstökum hópum bílstjóra þá má skoða það atriði, en það eru líka rök fyrir því vegna þess að þessi störf eru mismunandi. Það að stunda leiguakstur með fólk með þeim hætti sem leigubílstjórar gera felur í sér öðruvísi samskipti við fólk og öðruvísi störf heldur en t.d. að stjórna flutningabifreið. Það er alveg ljóst þannig að fyrir því eru líka rök. Þegar að takmörkuninni kemur þá skilur hv. þm. bersýnilega ekki tilganginn eða hugsunina þar á bak við. Það gegnir allt öðru máli í byggðarlagi þar sem engin tamörkun er --- vegna hvers? Vegna þess að þar hafa ekki fleiri farið í þennan akstur en svo að menn hafa ekki séð ástæðu til takmörkunar.
Ég vona að hv. þm. skilji þetta þegar hann er búinn að hugsa um það til morguns.