[15:52]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
Herra forseti. Það er vafamál hvort maður eigi að þreyta þessa umræðu miklu lengur. Það kemur stundum fyrir að jafnvel stjórnmálamenn í sama flokki hafa mismunandi skoðanir. Ég man ekki betur en þegar samningurinn um hið Evrópska efnahagssvæði var til umræðu og afgreiðslu í þinginu þá hafi einn þingmaður Kvennalistans skorið sig úr og tekið aðra afstöðu en Kvennalistinn í heild sinni, sá sem nú er borgarstjórefni svokallaðs R-lista í Reykjavík. Þannig að það þarf ekki að fara í ríkisstjórnina eða til sjálfstæðismanna til að glöggva sig á því að þingflokkar, jafnvel þótt litlir séu, geta klofnað í hinum stærstu málum.