Samfélagsþjónusta

130. fundur
Miðvikudaginn 13. apríl 1994, kl. 16:03:53 (6248)


[16:03]
     Guðrún J. Halldórsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég hafði að vísu grun um að það væri rétt sem hæstv. ráðherra sagði um grundvöllinn að dómnum, en ég kalla þetta Brussel þó ég vissi örlítið betur. Ég átti við að sá andi sem við erum að sækja til Mið-Evrópumanna má ekki ráða lögum og lofum í okkar gerðum. Þessi dómur sem felldur var er líka mjög svo í anda þeirra tilskipana sem við fáum frá Brussel.