Lögheimili

131. fundur
Miðvikudaginn 13. apríl 1994, kl. 18:24:18 (6267)


[18:24]
     Kristín Einarsdóttir (andsvar) :
    Frú forseti. Ég sé það þegar ég fer að skoða þetta betur, ábendingu hv. 6. þm. Reykv., Sólveigar Pétursdóttur, en það breytir ekki því að ég tel að það þurfi að athuga þetta atriði eftir sem áður. Mér sýnist ef frv. væri samþykkt óbreytt þá gildi nákvæmlega sömu rök og hv. 2. þm. Vestf. kom með. Mér finnst jafnmikil ástæða til að skoða málið eftir sem áður.