Lyfjaverslun ríkisins

132. fundur
Fimmtudaginn 14. apríl 1994, kl. 15:39:43 (6336)


[15:39]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. ræðumaður kom inn á það að fjárln. hefði beðið um skýrslu um SR-mjöl og hún væri ekki enn þá komin fram. Það er alveg rétt. En samkvæmt því sem mér hefur verið tjáð hjá Ríkisendurskoðun þá er skýrslan tilbúin en því er aftur á móti frestað að birta hana vegna þess að það stendur yfir málshöfðun vegna sölu SR-mjöls. Eins og ég benti á í umræðum áðan finnst mér þess vegna skjóta

mjög skökku við að vera að keyra þetta mál hér í gegn á sama tíma og í gangi eru málaferli vegna biðlaunaréttar starfsmanna sem þetta frv. kemur einnig inn á.