Lyfjaverslun ríkisins

133. fundur
Föstudaginn 15. apríl 1994, kl. 11:00:54 (6376)

[11:00]
     Halldór Ásgrímsson :
    Virðulegur forseti. Ég vildi aðeins taka það fram að í þessari brtt. við 5. gr. sem hefur verið hér til atkvæða er gert ráð fyrir því að þetta fyrirtæki taki til starfa 1. maí 1994. Það liggur fyrir að það getur ekki orðið og þess vegna þarf þetta mál að koma til endurskoðunar á milli 2. og 3. umr.