Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands

133. fundur
Föstudaginn 15. apríl 1994, kl. 14:25:39 (6402)


[14:25]
     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég get tekið undir það sem hv. þm. Finnur Ingólfsson sagði og er í rauninni einungis staðfesting á því sem í frv. segir. Ég gat þess ekki að ég hefði annan skilning á þessu en fram kom hjá hv. þm. Hins vegar var það hárrétt hjá honum að ég tók það skýrt fram að ég styddi þetta stjfrv. og það verður hver að leggja út af því eins og hann vill. En sem betur fer þá koma hin merkustu mál frá ríkisstjórninni og að sjálfsögðu tek ég afstöðu til þeirra á málefnalegum forsendum. Í þessu tilviki styð ég það frv. sem hæstv. heilbr.- og trmrh. hefur undirbúið og ég vil þakka honum alveg sérstaklega fyrir það hversu vel hefur verið að þessu máli unnið.