Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

133. fundur
Föstudaginn 15. apríl 1994, kl. 16:21:27 (6410)


[16:21]
     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti því að umræðunni verði frestað. Ég hef lýst því með hvaða hætti ég geti séð möguleika á því að menn nái saman í þessu eða komið verði til móts við þau sjónarmið sem hér hafa verið sett fram og eðlilegast væri að það væri rætt í hv. sjútvn. milli umræðna. Það má auðvitað gera meðan þessi umræða stendur þannig að ég geri í sjálfu sér engar athugasemdir við það að umræðunni verði frestað á þessu stigi og málið rætt frekar á milli aðila og þá væntanlega einnig í hv. sjútvn.