[15:27]
Fyrirspyrjandi (Árni R. Árnason) :
Virðulegi forseti. Frá því að hæstv. núv. fjmrh. beitti sér fyrir breytingu á lögum um ríkisskattanefnd sem fólu í sér skipun nýrrar nefndar, yfirskattanefndar, hefur sitthvað komið þeim aðilum sem um skattamál fjalla og við þau starfa á óvart í framkvæmd þessara laga, til að mynda hvernig nefndin var skipuð. Af þessum ástæðum vil ég spyrja ráðherrann nokkurra spurninga sem ég hef sett fram á þskj. 833:
,,1. Hve mörgum málum hefur verið vísað til yfirskattanefndar, hve mörgum málum hefur hún lokið, hve mörgum af úrskurðum hennar hefur verið áfrýjað til dómstóla?
2. Telur ráðherrann skipan yfirskattanefndar til þess fallna að aðilar að málum, sem hún fær til úrskurðar, telji hana óvilhallan úrskurðaraðila eða dómstól?
3. Telur ráðherrann koma til álita að breyta ákvæðum þar um í þá veru að hún verði skipuð ekki eingöngu einstaklingum sem starfað hafa við skattheimtu heldur einnig einstaklingum sem starfað hafa við gerð ársreikninga og við skattskil?
4. Telur ráðherrann koma til álita að skipa nefndina að fengnum tilnefningum samtaka slíkra aðila?``