[14:34]
Stefán Guðmundsson :
Virðulegi forseti. Við erum að fjalla um frv. til vegalaga. Ég verð að segja að það vekur furðu mína að við þá umræðu skulum við ekki sjá hér a.m.k. eins og einn ráðherra sem þetta mál heyrir undir. Ég skal ekki nefna fleiri. En ekki hefði mér fundist það óeðlilegt að hæstv. samgrh. væri við þessa umræðu. Það er rétt eins og hér hefur komið fram að þetta mál hefur fengið mjög ítarlega umræðu og meðferð í samgn. og margir verið þar kallaðir til og umsagnir hafa borist frá fjölda aðila. Það er vissulega ástæða til að fagna þessum vinnubrögð sem hafa verið um frv. til vegalaga og það gerum við ábyggilega sem í stjórnarandstöðu erum. Þetta eru allt önnur vinnubrögð en t.d. --- vegna þess að hér var hv. síðasti þm. að nefna flugmálaáætlun --- á sér stað um flugmálaáætlun og ég er sannfærður um að flugmálaáætlun væri betri ef sömu vinnugrögð væru höfð um hana eins og hefur orðið um frv. til vegalaga.
Formaður samgn., hv. 2. þm. Norðurl. v., og reyndar einnig hv. 6. þm. Vestf. hafa farið ítarlega yfir þær brtt. sem nefndin leggur til að gerðar verði á frv. og er því í sjálfu sér ekki ástæða fyrir mig að eyða löngu máli í að endurtaka það sem þegar hefur verið sagt. Ég undirstrika það að samgn. stendur öll að nál. og þeim brtt. sem koma fram á þskj. 933. Ég vil líka undirstrika það sem kemur hér fram í brtt., leggja áherslu á að ég tel að það sé skynsamlegt hvernig nefndin hafi þar tekið á. En þannig var það í frv. sjálfu að það stóð í 17. gr.:
,,Framlög til vega skv. 16. gr. greiðast úr ríkissjóði samkvæmt vegáætlun. Ráðherra ákveður skiptingu fjárveitinga til einstakra framkvæmdaflokka að fengnum tillögum vegamálastjóra.`` Hér breytti nefndin þessari 17. gr. og hún verður núna felld inn í 16. gr. og þar stendur: ,,Ráðherra ákveður skiptingu fjárveitinga til einstakra framkvæmdaflokka að fengnum tillögum vegamálastjóra og samgöngunefndar Alþingis.`` Ég tel að það sé mjög mikilsvert að hafa fengið þessa orðalagsbreytingu inn og tel það reyndar rétt að standa þannig að málum að þingnefndir verði virkari og fylgist meira með hvernig málatilbúnaðurinn verður.
Ég vil einnig lýsa yfir ánægju minni með það hvernig tekið var á þeim þætti mála í þessari vegáætlun sem lýtur að reiðvegum. Landssamband hestamanna hefur unnið mjög mikið að þessu máli í mörg undanfarin ár. Því miður hefur það gengið allt of hægt að ná árangri í þeim efnum og því fagna ég því nú og tel að við höfum náð mjög ásættanlegri niðurstöðu í sambandi við reiðvegagerð.
Það er líka mikill ávinningur og hjálpar til í þessu starfi að nú liggur fyrir skráning reiðvega um landið, hún liggur fyrir nú þegar og þetta verk var unnið samkvæmt tillögum Alþingis frá árinu 1991 ef ég man rétt. Þessi reiðvegaáætlun var unnin af Landssambandi hestamanna í fullu samráði og samvinnu við Vegagerð ríkisins. Í nál. segir um reiðvegi:
,,Lagt er til að í frumvarpið komi ný grein, 17. gr., þar sem mælt er fyrir um að í vegáætlun skuli veita fé til reiðvega samkvæmt sérstakri áætlun sem gerð er að höfðu samráði við samtök hestamanna og sveitarfélög. Ekki hefur verið gert ráð fyrir slíku samráði í vegalögum fram til þessa en á 113. löggjafarþingi var samþykkt þingsályktun um reiðvegaáætlun þar sem samgönguráðherra var falið að skipa nefnd með þátttöku samtaka hestamanna og sveitarfélaga til að kanna ástand reiðvega og gera reiðvegaáætlun.``
Það er sem sagt það nefndarstarf sem ég vék að áðan og liggur nú sem betur fer fyrir og þess vegna er hægt að fara að vinna á miklu markvissari hátt heldur en nokkurn tímann áður að gerð reiðvega.
Ég þarf ekki að eyða mörgum orðum í þetta mál. Hér er um mjög mikilsvert mál að ræða vegna þess að öllum er ljóst sem um þjóðvegi landsins fara hversu umferð hestamanna er orðin mikil, ekki aðeins út frá þéttbýlisstöðunum heldur vítt og breitt um landið. Þannig að það er mjög nauðsynlegt að koma þar betri skikkan á. Sorgleg slys hafa margsinnis átt sér stað vegna þessa og því undirstrika ég það og legg mikla áherslu á mikilvægi þess að nefndin skuli geta sameinast um þessa tillögu sem ég tel út af fyrir sig gagnmerka.
Það hefur einnig verið minnst hér á lausagöngu búfjár, ekki kannski alls óskylt mál. Það var mikil umræða um það í samgn. og er búin að vera það lengi, í nokkur ár man ég eftir. Í samgn. hafa menn verið að reyna að finna lausnir á þessu vandamáli, sem er lausaganga búfjár. Ég vona miðað við þær undirtektir sem það mál hefur fengið í samgn. að þar séu menn að feta sig inn á rétta og skynsamlega leið að leita samráðs og samvinnu við sveitarfélögin um þátttöku í því verki. Það hefur vitaskuld verið þröskuldur og erfitt að fást við Vegagerðina um það að hún tæki þetta allt að sér bæði girðingar og viðhald girðinga og eftirlit. Við sjáum það fyrir okkur hvernig það mundi fara fram að Vegagerðin þyrfti að vera með starfsmenn sína á eilífum þönum hringinn í kringum landið til að fylgjast með viðhaldi og ástandi girðinga. Ég tel því að sú leið sé illvinnandi á Alþingi að koma slíku í gegn og kannski heldur ekki rétt. En hins vegar tel ég það miklu eðlilegra og skynsamlegri leið að leita samráðs við sveitarfélögin um þetta verk og að Vegagerðin annist þetta en sveitarfélögin sjái síðan um viðhaldið og fái þar greiðslu fyrir.
Það hefur aðeins verið vikið að því hvernig með þetta mál skuli farið og rétt að skýra frá því að það var full samstaða um það í nefndinni þó við hefðum sjálfsagt viljað eða a.m.k. svara ég því fyrir mig að ég hefði gjarnan viljað geta klárað þetta verk og komið með það þannig hingað til þings til afgreiðslu. En því miður var það svo að við vorum í nokkru tímahraki við að vinna það mál og ég tel ekki skynsamlegt í málum eins þessum að nefnd þingsins eða þingið geri slíkt án verulegs samráðs eða samvinnu við sveitarstjórnaraðila og þá sem við þetta eiga að búa. Því var það að samgrh. féllst á að gefa nefndinni yfirlýsingu í þessa átt og vegna þess að hún hefur verið nefnd hér þá sé ég enga ástæðu til annars en að lesa þessa yfirlýsingu þannig að mönnum sé það ljóst um hvað hún fjallar. En yfirlýsingin er þannig, með leyfi, virðulegur forseti:
,,Yfirlýsing samgrn. vegna frumvarps til vegalaga. Í vegalagafrumvarpi því sem liggur fyrir Alþingi er ákvæði sem bannar lausagöngu búfjár á vegsvæðum þar sem girt er báðum megin vegar. Þetta ákvæði leggur aukna áherslu á viðhaldsskyldu vegna girðinga. Af því tilefni hef ég ákveðið að skipa nefnd til þess að endurskoða ákvæði laga um girðingarskyldu og viðhald girðinga meðfram vegum sem m.a. skal huga að því að breyta reglum um viðhald girðinga með vegum á þann hátt að aðild ríkissjóðs komi að einhverju leyti til. Miða skal við að breytingar þessar komi sem fyllri ákvæði um girðingar í vegalög. Nefndinni ber að ljúka störfum fyrir haustþing nk. svo leggja megi málið fyrir Alþingi í þingbyrjun.``
Þetta er sú yfirlýsing sem ráðherra lét okkur í samgn. fá í hendur. Og ég trúi því og treysti að samgrh. bregðist við þessu máli og skipi þennan starfshóp og hann starfi þannig og finni á þessu farsæla lausn.
Virðulegi forseti. Ég gæti auðvitað farið ofan í einstakar greinar en ég sé ekki að það þjóni neinum tilgangi það hefur verið gert hér af framsögumanni og formanni nefndanna sem fór ítarlega yfir málið og nefndin er sammála um þetta nál. og þær brtt. sem fyrir liggja og ég vænti þess að Alþingi geti samþykkt þær.