[15:27]
Páll Pétursson :
Herra forseti. Hér er um grafalvarlegt mál að ræða, en hæstv. ríkisstjórn hefur gert það að skringilegum farsa. Hæstv. dómsmrh. talaði um fjölmiðlaleik. Ég held að það sé í þessu tilfelli óþarfi að kenna fjölmiðlum um þó að þeir hafi fylgst með málinu. Það var hæstv. utanrrh. sem hóf leikinn. Ég kippti mér út af fyrir sig ekkert upp við það þó að hæstv. utanrrh. væri með yfirlýsingar um að það væri hægt að kaupa þrjár Sikorsky þyrlur á spottprís. Ég hef nefnilega hlustað hann halda svo margri fjarstæðunni fram að ég gerði ekkert með þetta sem hann var að segja, enda kom það á daginn að hann hafði ekki rétt fyrir sér og vill láta líta svo út sem Bandaríkjamenn hafi verið að spila með sig. Nú reynir hann að tefja málið með því að leggja til að teknar verði upp langar samningaviðræður við Bandaríkjamenn um þetta mál. Nei, auðvitað er löngu tímabært að fara að tillögu hæstv. dómsmrh. og semja um kaup á Super Puma þyrlu og ég treysti því að hæstv. dómsmrh. beri gæfu til að leiða það mál til lykta í kvöld eða í fyrramálið.