Varnir gegn mengun hafsins

137. fundur
Þriðjudaginn 19. apríl 1994, kl. 16:47:16 (6477)

[16:47]
     Frsm. utanrmn. (Geir H. Haarde) :
    Virðulegi forseti. Utanrmn. hefur fjallað um þessa þáltill., um staðfestingu breytinga á samningi um varnir gegn mengun hafsins vegna losunar úrgangsefna og annarra efna í það. Nefndin hefur fjallað um þessa tillögu og sendi hana jafnframt umhvn. til umsagnar, sem mælti með samþykkt hennar. Umsögn umhvn. er jafnframt birt sem fskj. með nál. utanrmn.
    Það var niðurstaða utanrmn. að samþykkja bæri þessa tillögu. Um það voru allir nefndarmenn sammála.