Fullgilding ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um bókun 47

138. fundur
Miðvikudaginn 20. apríl 1994, kl. 14:39:47 (6503)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti hefur hlýtt á athugasemdir þingmannsins og mun að sjálfsögðu taka tillit til þess og gera viðeigandi ráðstafanir. (Gripið fram í.) Forseti vill biðja hv. þm. afsökunar á því að þau boð höfðu ekki komið til forseta um að það hefði verið samið um að umræðan væri ótímasett þannig að forseti mun að sjálfsögðu taka tillit til þess og gera ráðstafanir til þess að þeir hv. þm. sem hafa þegar talað fái það bætt.