[15:26]
Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Frú forseti. Það vakti nokkra undrun mína að hv. fyrirspyrjandi skyldi draga í efa að ríkisstjórn og Alþingi ættu að skipta sér af skipun dómstólanna í landinu. Þessi skoðun stangast algjörlega á við stjórnarskrá landsins þar sem kveðið er á um það að skipa skuli málefnum dómstólanna með lögum og það getur enginn annar en Alþingi sett lög um dómstóla.
Fyrirspurnin að öðru leyti bendir til þess að umræður um málefni Hæstaréttar á þinginu í vetur hafi farið fram hjá hv. fyrirspyrjanda. Alþingi hefur nýlega samþykkt löggjöf um Hæstarétt þar sem m.a. var kveðið á um fjölgun dómara um einn og skiptingu dómsins í deildir. Þar að auki voru samþykktar í tengslum við þá löggjöf breytingar á lögum um meðferð einkamála og breytingar á lögum um meðferð opinberra mála, sem fela í sér skipulagsbreytingar varðandi áfrýjunarmál, sem létta eiga álagi á Hæstarétt og einkanlega að tryggja skjótari meðferð minni háttar mála en um leið að tryggja vandaðri og öruggari meðferð stærri mála sem hafa verulegt fordæmisgildi.
Hér hafa því á þinginu í vetur verið teknar ákvarðanir sem marka mjög skýra stefnu um stöðu réttarins og innra skipulag og að því er varðar meðferð áfrýjunarmála. Ég tel að teknar hafi verið mikilvægar ákvarðanir í þessu sambandi á þinginu í vetur og þar kemur mjög skýrt fram hver er stefna ríkisstjórnarinnar í þessu efni sem Alþingi hefur þegar fallist á með samþykkt frumvarpanna.