[17:03]
Svavar Gestsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir margt af þeim sjónarmiðum sem fram komu í ræðu hæstv. menntmrh. M.a. vil ég vekja sérstaka athygli á þeim upplýsingum sem fram komu hjá honum varðandi hans viðhorf til notkunar á endurbótasjóði menningarstofnana til næstu ára. Auðvitað þyrftum við að vera með aðstöðu til þess að gera áætlanir til margra ára varðandi uppbyggingu og endurbætur á menningarstofnunum og reyndar viðhaldi mannvirkja yfirleitt. Því miður búum við enn þá við það frumstæða ástand að fjárlög eru bara til eins árs í senn og það er erfitt að gera áætlanir til lengri tíma sem væri þó æskilegt þegar um stórframkvæmdir og viðhaldsverkefni er að ræða. En það er mjög mikilvægt að þær tölur hafa komið fram í svari hæstv. ráðherra sem birtust áðan varðandi Þjóðminjasafnið, Þjóðskjalasafnið og Þjóðleikhúsið. Ég verð þó að segja að þær komu mér í sjálfu sér ekkert á óvart nema mér var nokkuð brugðið þegar ég heyrði töluna liðlega 1 milljarður kr. til endurbóta og nýbyggingar við Þjóðminjasafnshúsið. Það er hærri tala en ég hef nokkru sinni áður heyrt og hlýtur fyrst og fremst að liggja í því að menn geri ráð fyrir verulegri nýbyggingu og nýju sýningarhúsnæði í tengslum við safnið sem er út af fyrir sig sannanlega þörf fyrir og má færa rök að.
Ég vil segja það að lokum, hæstv. forseti, að ég tel mikilvægt að við meðferð fjárlaga fyrir Landsbókasafn Íslands Háskólabókasafn í haust verði farið yfir þessi mál öll og reynt að sjá fyrir endann á þeim eins og kostur er. Ég held að það væri gott fyrir alla aðila, ekki síst fyrir menntmrn. ef það væri hægt að róa fyrir þessar víkur svo að segja allar áður en sú hátíðlega stund rennur upp að hið nýja safn verður opnað í haust.