[00:28]
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Það var ákaflega hugljúf ræða sem hv. þm. Gunnlaugur Stefánsson flutti áðan og ég vona að hann verði þessa sinnis á morgun og haldi fund í hv. heilbrn. og ræði þau mál sem hér hafa verið á dagskrá því að mér heyrist að þeir bræður báðir séu orðnir þannig sinnaðir að það verði hægt að finna lausn á málinu.
En hvað varðar það sem hann sagði hér áðan, að heilbr.- og trn. sé búin að vinna mjög mikið, þá hafa allar nefndir verið að vinna mjög mikið undanfarið og eiga eftir að gera það. Hins vegar vil ég minna hann á að það er ekki verið að ljúka þinginu. Það hefur ekkert verið um það samið hvenær því ljúki. Við fengum forgangslista frá ráðherrum í gær þar sem eru um 100 mál sem er alveg fyrirsjáanlegt að er ekki hægt að ljúka alveg á næstu dögum. Þannig að út frá því sé ég ekki nokkra einustu ástæðu til þess að halda hér áfram langt fram á nótt þegar vinnudagar eru hér fram undan í þessari viku.
Ég vil einnig nefna það, eins og ég sagði áðan, að í fyrramálið eiga flestallar nefndir að fara að vinna klukkan átta og á fundi þingflokksformanna í gær var að vísu ekki rætt um það að hætta klukkan tólf en ég gerði fyrirvara um að það yrði farið að huga að því að hætta klukkan tólf og meginforseti svaraði því að það væri nú kannski ekki hægt á mínútunni tólf en svona hálfeitt til eitt eftir því hvernig stæði á ræðum.