[15:49]
Guðmundur Bjarnason (um fundarstjórn) :
Virðulegur forseti. Ég vil aðeins upplýsa það að hv. formaður heilbr.- og trn. gerði mér orð um það að hann gæti því miður ekki setið þennan fund í dag og spurði hvort við framsóknarmenn sem höfum tekið þátt í þessari umræðu mundum leggjast gegn því eða gera athugasemdir við það. Ég tjáði honum að við mundum ekki gera það. Við mundum vegna þeirra aðstæðna sem hann greindi frá fallast á það að umræðan héldi áfram, enda sýndist okkur allar líkur á því að henni lyki ekki í dag, umræðunni lyki ekki á þessum fundi svo að það yrði kostur á að ræða málið aftur að hv. formanni nefndarinnar viðstöddum. En ég vil auðvitað taka það skýrt fram að þetta var aðeins talað fyrir hönd okkar framsóknarmannanna sem tókum þátt í umræðunni og alls ekki neinn bindandi samningur af okkar hálfu fyrir hönd annarra hv. þm., hvorki framsóknarmanna né þeirra annarra sem hér vilja taka þátt í umræðunni. Það verður að vera alveg skýrt af minni hálfu.
Hitt vil ég svo líka taka undir að ég tel að það hefði verið miklu betra ef þetta hefði komið fram
í gærkvöld eða réttara sagt í nótt þegar samið var um framgang og áframhaldandi umræðu þessa máls.