Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands

143. fundur
Fimmtudaginn 28. apríl 1994, kl. 15:09:37 (6732)


[15:09]
     Margrét Frímannsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég vil gera grein fyrir því hvers vegna við í minni hluta heilbr.- og trn. undirritum nál. með fyrirvara vegna þess að það var mjög góð samstaða í nefndinni um afgreiðslu frv. og hefur ekkert með það að gera. Við teljum frv. vel unnið og styðjum það heils hugar en viljum þó að það komi fram að við teljum að Brunabótafélag Íslands og Húsatryggingar Reykjavíkur hefði átt að meðhöndla á sama hátt.