[16:43]
Frsm. efh.- og viðskn. (Halldór Ásgrímsson) :
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1003 frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lögum um skattskyldu innlánsstofnana, með síðari breytingum.
Nefndin fékk til fundar við sig fulltrúa frá fjmrn. Einnig bárust umsagnir frá ASÍ, fjmrn., Sambandi íslenskra sparisjóða, Verslunarráði og VSÍ. Það má segja að allar þessar umsagnir hafi verið jákvæðar. Hér er um nánast sjálfsagðar breytingar að ræða, þ.e. að færa þau atriði sem snerta afskriftareglur útlánastofnana í skattalögum að þeim veruleika sem þær standa frammi fyrir og samræmist góðum reikningsskilavenjum.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með breytingum sem gerðar eru tillögur um á sérstöku þingskjali. Þær breytingar miðast að því að taka lánastofnanir sem fjallað er um í lögum nr. 123/1993, um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði, inn í frv. sem eðlilegt verður að teljast. Slíkar lánastofnanir munu framvegis lúta að mörgu leyti sömu reglum og viðskiptabankar og sparisjóðir, m.a. að því er varðar eftirlit bankaeftirlits Seðlabanka Íslands, eiginfjárkröfur o.fl. og því þykir eðlilegt að samræmdar reglur gildi þar um varðandi skattalega stöðu lánastofnana almennt. Ekki er þó gert ráð fyrir að eignarleigufyrirtæki, sem skilgreind eru í 9. gr. laga nr. 123/1993, þ.e. um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði, muni falla undir skattskyldu laga nr. 65/1982 vegna sérsjónarmiða sem um slík fyrirtæki gilda, annars vegar varðandi fjármögnunarleigusamninga og hins vegar kaupleigusamninga.
Þá er lagt til að gildistöku þessa frv., ef að lögum verður, verði frestað um eitt ár frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir í frv.
Undir nál. rita allir nefndarmenn efh.- og viðskn. þannig að full samstaða er um málið og nefndin leggur til að það verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef nú gert grein fyrir.