[16:47]
Frsm. efh.- og viðskn. (Halldór Ásgrímsson) :
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. sem hefur það fallega númer 1000, einn og mikið af núllum. Það er nokkuð ánægjulegt hlutskipti að mæla fyrir þskj. sem hefur svo fallegt númer. Ég sé að salurinn tæmist svo gleðin virðist ekki vera jafnmikil hjá öðrum þingmönnum.
En þetta er út af fyrir sig mjög einfalt frv. Það gerir ráð fyrir að Fasteignamat ríkisins fái yfir sig stjórn og gert er ráð fyrir því að einn skuli tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga en tveir skuli skipaðir án tilnefningar. Til fundar við nefndina komu embættismenn fjmrn., jafnframt Sigmar Ármannsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra tryggingafélaga, Sigurður Helgi Guðjónsson, lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu, og Jón Guðmundsson, formaður Félags fasteignasala, og Sverri Kristinsson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala.
Nefndin leggur til að mæla með að frv. verði samþykkt en telur hins vegar rétt að taka málið aftur til umfjöllunar áður en 3. umr. fer fram, m.a. í tengslum við skipun stjórnar ef hlutverk Fasteignamats ríkisins við brunabótamat verður lögfest með samþykkt 577. máls þingsins, þ.e. frv. til laga um brunatryggingar. Nú virðast allar líkur benda til að það mál verði hér afgreitt þannig að það verður til þess að nauðsynlegt er að nefndin taki málið til umfjöllunar milli 2. og 3. umr. Í ljósi þessa leggur nefndin til að frv. verði samþykkt
Undir nál. skrifa allir nefndarmenn í efh.- og viðskn.