[18:02]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Hæstv. sjútvrh. talar um að það skorti á ábyrgðartilfinningu okkar framsóknarmanna í þessu máli. Því vísa ég alfarið á bug. Framsfl. hefur á umliðnum árum verið tilbúinn að axla ábyrgð varðandi stjórn sjávarútvegsmála og fiskveiða. Það sem er hins vegar að gerast hér er það að núv. hæstv. ríkisstjórn og núv. hæstv. sjútvrh. er að mistakast algerlega að leiða aðila þannig saman að þeir geti komist að sameiginlegri niðurstöðu og fundið sína sameiginlegu hagsmuni. Hæstv. núv. ríkisstjórn, eftir að hafa unnið að þessu máli í þrjú ár með tvíhöfða nefndinni og niðurstaða hefur alltaf verið á leiðinni, er búin að koma málinu í þann hnút núna að sjómannasamtökin og Verkamannasamband Íslands berast orðið á banaspjótum í þessu máli. Og ég vil minna hæstv. ráðherra á varnaðarorð formanns Verkamannasambands Íslands þegar hæstv. ráðherra talar um að það verði að skoða heildarhagsmuni.
Kjarni málsins er sá að hæstv. ráðherra hefur algerlega mistekist að leiða aðila málsins saman þannig að menn fyndu sameiginlega hagsmuni.