[18:38]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon talaði til okkar sem hér höfum tekið þátt áður í umræðunni og bað okkur að fara varlega þegar við ræddum um átök aðila innan verkalýðshreyfingarinnar um þessi mál. Ég get út af fyrir sig tekið undir það en hins vegar liggja hér fyrir mjög harðorðar yfirlýsingar formanns Verkamannasambands Íslands út af þessu máli. Það er því vissulega ástæða til þess að á það sé bent.
En varðandi ræðu hv. þm. út frá þessu þá talaði hann um óheppilegar aukaverkanir sem alltaf gætu verið deilur um og seinna í sinni ræðu þá talaði hv. þm. um þær reglur sem hann taldi að væri eðlilegt að væru settar um viðskipti með aflamark. Ég hlýt þess vegna að spyrja hv. þm., m.a. með tilliti til orða hv. 5. þm. Norðurl. v. áðan, hvort beri að skilja orð hv. þm. þannig að hann sé, eins og hann greiddi atkvæði 1990, þeirrar skoðunar að það sé æskilegt að við höfum hér aflamarkskerfi og sem frjálsastar heimildir með framsal á aflamarkinu.