[16:31]
Ólafur Ragnar Grímsson (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Eins og forseti var að nefna og við sáum hér á borðum fyrir fáeinum mínútum þá er búið að dreifa þskj. 1131, brtt. frá umhvrh. Ég verð að segja alveg eins og er að ég held að það sé nokkuð sjaldgæft að þegar nefnd er búin að verja mörgum mánuðum í að fjalla um frv., búin að fytja um það fjölmargar brtt., búin að fá sérstakt erindi um brtt. frá ráðherranum fyrir mörgum vikum síðan þá gerist það í upphafi 2. umr. um málið að dreift er á borðin brtt. frá umhvrh. sem nefndin hefur aldrei séð og hafa vitanlega ekki verið kynntar neinum nefndarmanni og formaður nefndarinnar getur þess að honum hafi verið ókunnugt um.
Nefndin hefur lagt gífurlega vinnu í þetta mál, m.a. fjallað ítarlega um þau atriði sem umhvrh. er nú að leggja til breytingar á. Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna í nefndinni hafa aldrei orðað þær brtt. sem umhvrh. er nú að leggja til. Það vaknar því auðvitað upp sú spurning hvort hann er að flytja þetta sem einstakur þingmaður eða hvort hann er að flytja þetta sem ráðherra í umboði ríkisstjórnarinnar við stjfrv.
Ég kvaddi mér hljóðs til þess að spyrja virðulegan forseta hvernig forseti hyggst halda áfram umfjöllun um þetta mál nú þegar fyrir liggja brtt. frá hæstv. ráðherra. Mér er tjáð að hæstv. ráðherra sé á mælendaskránni og það er kannski ekki óeðlilegt að hann ávarpi þingið og geri einhverja grein fyrir því hvað hér er eiginlega að gerast. En að þeirri ræðu lokinni og ef hún verður kannski fram til kl. 5 þá er það kannski í sjálfu sér sjálfgert --- (Gripið fram í: Ekki um tillögur sem ekki eru komnar á dagskrá.) Nei, það er út af fyrir sig rétt að ráðherrann á erfitt með að fjalla um tillögur sem ekki eru komnar á dagskrána. Það er út af fyrir sig alveg rétt samkvæmt þingsköpum. En mér finnst fullkomlega óeðlilegt, virðulegi forseti, að halda áfram að fjalla um málið og við sem höfum starfað í nefndinni eigum óhægt um vik þegar búið er að dreifa þessum brtt. Ég vil því mælast til þess að það verði haft samráð um það hvernig haldið verði áfram með þessa umræðu í ljósi þess sem var að gerast á síðustu mínútum.